..
ætti ég að byrja að blogga aftur?? mér kitlar e-ð smá í puttana þannig ég ætla bara að prufa... ;)
ég fór í ræktina áðan, ekki hægt að segja að ég sé dugleg þar sem síminn minn hringdi nokkrum sinnum & ég "þurfti" að svara.. en það er laugardagur.. þannig ég fór fljótlega bara í Jóa fel að kaupa brauð, fjalabrauð, mæli með því & svo heim.. ég er að reyna að hafa mig í að fara ryksuga en Villi er sofandi í stólnum sem ég gaf honum & ég vil ekki vekja hann..
Þeir feðgar fóru fram saman i morgun, ég fékk að sofa aðeins lengur, ekki veitti af, er svo endalaust þreytt e-ð.. en ég svaf til að verða hálf 12, hefði samt alveg vilja sofa til svona 14:00 hehe.. ;)
Mikael fer til Þóru á eftir, ég þarf að fara vinna, Bergrós kemur svo & gistir hjá okkur í nótt þannig það verður bara fínt.. smá kózý kvöld, ætli við förum ekki & finnum okkur video eða e-ð..
ég er orðin svo spennt að fara til DK, við Villi kunnum samt ekki að vera ein 2 lengur hehe, erum alltaf með einhvern í kringum okkur, ef ekki Mikael okkar þá eru það starfsmennirnir okkar..!! en þetta veður bara fínt, gott fyrir okkur að vera bara 2.. þó svo ég eigi ekki eftir að geta gert mikið annað en að gráta á kvöldin, á eftir að sakna Mikeys svo.. en hann verður í góðum höndum..
talandi um Mikey, hann er að vakna útí kerru, ætla að fara sækja hann ;)
Eyrún..!!















